Stutt gamansaga í tilefni þess að það er föstudagur:
Í heimsókn sinni á geðveikrahælið spurði einn gesturinn
deildarstjórann hvaða aðferð læknarnir beittu til að ákvarða hvort
leggja ætti sjúkling inn á hælið eður ei.
,,Sko," sagði deildarstjórinn, ,,við fyllum baðkar af vatni. Svo
bjóðum við sjúklingnum teskeið, tebolla eða fötu til að tæma
baðkarið."
,,Aaa, ég skil," sagði gesturinn, ,,heilbrigð manneskja mundi þá
velja fötuna, þar sem hún er stærri en teskeiðin og tebollinn og
auðveldast að tæma baðkarið þannig!"
,,Nei," sagði deildarstjórinn, ,,heilbrigð manneskja mundi taka
tappann úr.
Má bjóða þér herbergi með eða án glugga?